157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:22]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Við greiðum hér atkvæði um sundurliðunina varðandi erfðafjárskatt en hæstv. ríkisstjórn komst allt í einu að því að hægt væri að hækka áætlaðar tekjur þar. Það er eins og ríkisstjórnin hafi uppgötvað öðruvísi aldurssamsetningu þjóðarinnar frá því hún lagði fjárlagafrumvarpið fram í september, sem er skrýtin ráðstöfun. Ég vildi líka koma hér og benda á það að í sömu atkvæðagreiðslu hér 2019 var ákveðið að fjórfalda skattleysismörk í erfðafjárskatti, upp í 5 millj. kr. þá sem verðbætist svo. Síðan þá hafa fyrirframgreiddur arfur og arfgreiðslur til ríkissjóðs aukist þannig að með auknu skattfrelsi í erfðafjárskatti aukast tekjurnar en ekki með einhverjum æfingum í fjármálaráðuneytinu.