157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:26]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Við greiðum hér atkvæði um breytingar á tekjuhlið fjárlaga er varðar erfðafjárskattinn. Um er að ræða einfalda breytingu sem verður til vegna endurmats í fjármálaráðuneytinu af þeim ástæðum að fyrirframgreiddur arfur hefur aukist gífurlega á síðastliðnum árum. Bara sem dæmi: Frá 2023–2024 fór skattur af fyrirframgreiddum arfi úr rúmlega 7,5 milljörðum upp í tæpa 9 milljarða á einu ári. Sama þróun hafði átt sér stað árin á undan. Hér er ekki verið að reyna að lauma inn einhverri erfðafjárskattshækkun, þetta er einfaldlega endurmat í ráðuneytinu og ég ætla að greiða atkvæði með því.