fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér er maður af veikum mætti að reyna að fylgjast með hvar við erum. Ég held við séum í vörugjöldum af ökutækjum, er það rétt? Mig langaði bara að koma hér upp og benda á það, sem hefur svo sem verið bent á áður, að það er algerlega ljóst að sú hækkun sem hér er boðuð mun ekki koma að fullu inn í fjárlögin. Við höfum fengið upplýsingar um það frá bílaleigum og bílasölum að salan nú fyrir áramót sé með þeim hætti að það sé algerlega ljóst að salan muni detta niður á næsta ári. Við höfum heyrt tölur frá bílaleigum að yfir 2.000 bílar séu á leiðinni hér fyrir áramót. Ég vil bara benda þingheimi á að þessi tala sem er hér inni er röng. Ég skora á fjárlaganefnd, sem fær þetta frumvarp væntanlega inn á milli umræðna, eða efnahags- og viðskiptanefnd, að endurskoða þessa tölu í fjárlögunum.