157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:39]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Við erum hér með breytingartillögu við fjárlögin sem felst í því að lækka framlög um 500 millj. kr. í viðbyggingar við Stjórnarráðið. Þessi tillaga er hluti af þeim tillögum sem við lögðum fram hér í okkar 1. minnihlutaáliti við fjárlagafrumvarpið og ég bara hvet þingheim til þess að lesa þetta plagg. Það er langt en ég efast ekki um að menn myndu hafa mjög gott af því. Niðurstaðan er í raun og veru sú að við erum bæði með tillögur á tekju- og gjaldahlið þannig að niðurstaðan er nokkurn veginn í núlli eða frekar í plús fyrir ríkissjóð. Þetta er því ein af þeim tillögum til að koma til móts við þær útgjaldatillögur sem við erum með, þ.e. að fresta þessari framkvæmd.