fjárlög 2026.
Frú forseti. Þetta er mjög góð tillaga og þetta er sparnaðartillaga frá Framsóknarflokknum. Þetta snýst um, eins og hér var lýst áðan, að fresta, ég myndi reyndar vilja segja aflýsa, hætta við, byggingu nýs Stjórnarráðshúss. Eins og sumir þekkja, þá stóð hér í eina tíð til að rífa Torfuna svokölluðu, byggja þar stjórnarráðsbyggingu. Ég hugsa að flestir séu glaðir að ekkert varð af þeim áformum. Nú stendur til að byggja þessa stjórnarráðsbyggingu beint fyrir aftan gamla Stjórnarráðshúsið og það mun mjög skerða heildarmynd Lækjargötunnar og vera til mikillar óþurftar fyrir bæjarbraginn og fyrir ráðuneytið að ég hygg líka. Þess vegna styð ég eindregið þessa tillögu og myndi auðvitað helst vilja að menn endanlega hættu við þetta. Að vísu gætu einhverjir nefnt að þetta hafi komið í tíð síðustu ríkisstjórnar en sú ríkisstjórn hafði þó vit á því að hverfa frá þessu. Þessi ríkisstjórn kennir þeirri síðustu um allt mögulegt en bætir svo bara í vitleysuna.