fjárlög 2026.
Frú forseti. Eins og hefur komið fram er þetta tillaga okkar í Framsókn. Það eru blikur á lofti í ferðaþjónustunni, við sjáum að það er verið að draga saman hvað varðar pantanir og annað þegar kemur að ferðaþjónustu um allt land og með því að leggja til þessa upphæð til langs tíma, það liggur líka fyrir þingsályktunartillaga frá Framsókn hvað þetta varðar, a.m.k. í vinnslu, þá erum við að styðja við eitt af markmiðum ferðamálastefnunnar sem var samþykkt hér að mig minnir af öllum þingflokkum í þinginu. Markmiðið er að styrkja samkeppnishæfni greinarinnar, jafna árstíðasveiflu og dreifa álagi á verðmætasköpun um allt land. Þetta er því gríðarlega mikilvægt framlag til þess að efla eina af okkar mikilvægu atvinnugreinum hér á landi.