fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Mig langar til að taka undir með kollegum mínum. Þetta er mikilvæg tillaga. Hún er mikilvæg vegna þess að við erum að sjá blikur á lofti þegar kemur að ferðaþjónustunni, ekki síst vegna breytinga sem hafa átt sér stað í Bandaríkjunum sem þegar hafa haft áhrif á pantanir hér á landi. Við þurfum að gefa í núna til að passa upp á þann geira. Við þurfum líka, þegar kemur að neytendamarkaðssetningunni, að horfa á, núna þegar það er meiri óvissa, að fá tækifæri fyrir íslenskan útflutning. Hér hefur verið nefnd matvælaframleiðsla, landbúnaðurinn okkar, en þetta á líka við um hugverkaiðnað, tækni, íslenska hönnun, allt það góða sem við höfum upp á að bjóða og getum sett kraft í nú í gegnum þessi fjárlög. Ég hvet þingheim þess vegna til að greiða með þessari tillögu. Hún skiptir máli.