157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:51]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Hér erum við í Framsókn að leggja til að það verði frestun eða tilfærsla á fjárfestingum hjá okkur á næsta ári upp á 1 milljarð. Þetta er gert til að koma til móts við það sem við erum að leggja fram í okkar breytingartillögum um að við séum að netta út tekjur og gjöld í okkar tillögum. Við höfum séð þetta gert í frumvörpum hér áður fyrr á síðustu árum að til þess að ná fram ákveðnum hagræðingum höfum verið að færa til verkefni, oft ekki nema bara um nokkra mánuði. En það er sú tillaga sem við erum að leggja til að verði gert hér.