157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:55]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Hér er enn ein hagræðingartillagan frá okkur í Framsókn sem gengur út á það að hækka aðhaldsprósentuna úr 1% í 2%, um 1%. Þetta er áætlað að gefa okkur svona um 3 milljarða kr. hagræðingu sem ég held að sé afskaplega skynsamlegt, sérstaklega í ljósi þess að ríkisútgjöldin eru að hækka um 143 milljarða á milli ára. Þá myndi þessi tillaga þýða að útgjöldin yrðu hækkuð um 140 milljarða. Þarna er líka möguleiki fyrir ríkisstjórn og fjárlaganefnd að auka svigrúmið gagnvart stöðugleikareglunni þannig að við séum ekki algerlega á hnífsoddinum. Ég tel að hér sé afskaplega skynsamleg tillaga sem ég hvet þingheim til að skoða. Um hana gilda sömu lögmál og hagræðingarregluna, að það eru sömu stofnanir ríkisins undanþegnar þessu 2% eins og 1% í dag.