157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Krónur eru líka peningar og við erum að reyna að hjálpa ríkisstjórninni og bíðum spennt eftir að hún styðji einhvern tímann eitthvað sem hún talar um, hagræðingu og aðhald. Þess vegna er þessi tillaga hér fram komin og er sannarlega ekki stærsta upphæðin. Það munar hins vegar um allt og væri náttúrlega líka stórfrétt, það væri stórfrétt, virðulegur forseti, ef hæstv. ríkisstjórn myndi vilja spara einhvers staðar og hérna er svona lítil og sæt tillaga sem væri t.d. kjörið fyrir hv. þingmenn Viðreisnar að greiða atkvæði með en Viðreisn stendur fyrir vinstri.