fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér eru greidd atkvæði um að bæta 1 milljarði í mikilvæga rannsóknasjóði. Slíkir sjóðir eru meðal hornsteina okkar þekkingarsamfélags. Þeir eru til framfara og hagsældar fyrir okkur og fjárfesting í rannsóknum og nýsköpun hefur sýnt að hún skilar sér margfalt. Mörg af okkar framsæknustu fyrirtækjum sem við tölum gjarnan um hér hafa stigið sín fyrstu skref með styrk frá þessum sjóðum. Þetta er því góð tillaga og ríkisstjórnin mun áfram styðja ötullega við nýsköpun og rannsóknir til að auka verðmætasköpun í landinu. Hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson var með ágætistillögur hér áðan. Ég minni þó á að þessi ríkisstjórn hefur einmitt, með Áherslusjóði og væntanlegum nýsköpunarsjóði, lagt áherslu á að styðja við landsbyggðirnar.