157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:25]
Horfa

Aldursforseti (Eyjólfur Ármannsson):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða gríðarlega mikilvægt fjárframlag til sóknaráætlana landshluta og þar með til landsbyggðarinnar. Sóknaráætlanir hafa fest sig í sessi sem öflugt tæki til byggðaþróunar. Nýjar sóknaráætlanir tóku gildi um áramótin og gilda út árið 2029. Í þeim er sérstök áhersla lögð á svæði á landsbyggðinni sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Markmið með sóknaráætlununum er að stuðla að jákvæðri samfélags- og byggðaþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni á landsbyggðinni. Ég segi já.