157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:29]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég býst við að hér sé verið að færa þessar sóknaráætlanir sem hæstv. innviðaráðherra var að tala um áðan og auka þær. Ég vildi bara benda á að með því að taka verkefni sem áður hafa verið framkvæmd af fjárlaganefnd og fjármögnuð og færa þau yfir til landshlutanna, jafnvel með ekki eins miklu fjármagni og þarf til, er ekki verið að auka heldur verið að færa verkefni til. Það kallar á aukna vinnu hjá landshlutanum, sem er þá kostnaður þeirra, en það er ekki verið að bæta í. Hér hefði t.d. ríkisstjórnin getað tekið utan um byggðamálin miklu betur. Það kemur reyndar tillaga síðar í þessari atkvæðagreiðslu þar sem Byggðastofnun er að fara fram á lánsfjárheimild upp á 5 milljarða, er reyndar að fara fram á lánsfjárheimild upp á 8 milljarða til að styðja við talsverðan vöxt sem er á landsbyggðinni. Ég held að ríkisstjórnin ætti að skoða það milli 2. og 3. umræðu að verða við þeirri beiðni.