157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:32]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Sóknaráætlanir eru mjög mikilvægt tæki til að styðja við fjölda verkefna á landsbyggðinni. Það lá fyrir nefndinni að bæta 126 millj. kr. í sóknaráætlun. Við gerðum gott betur til að reyna að beina þeim fjölda verkefna sem hafa komið fyrir nefndina í ákvarðanatöku heim í hérað. Það væri skynsamlegast og best að gera þetta með þessum hætti, enda erfitt fyrir fjárlaganefnd að meta hvert og eitt verkefni fyrir sig og mikilvægi þeirra og forgangsröðun. Það er mat meiri hluta nefndarinnar að hér þurfi að gera jafnvel enn betur næstu ár og er þetta ein af þeim breytingum sem við sjáum fyrir okkur til framtíðar, hvernig við getum komið verkefnum til landsbyggðarinnar og heim í hérað. Ég styð þetta auðvitað.