157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:38]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég vil koma hérna upp og taka undir með hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur. Þjóðkirkjan gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki í samfélagi okkar. Það er sérstaklega úti um allt land, þar sem mikill skortur er á sálfræðiþjónustu og annað, sem kirkjurnar og prestarnir komið og hlaupið undir bagga. Ég tek undir með hv. þingmanni að við verðum að koma þessu í betra horf. Sjálfstæðisflokkurinn er á grænu hér; við teljum að það hafi unnist ákveðinn varnarsigur í málinu en horfum til framtíðar þegar kemur að því að styrkja stoðir þjóðkirkjunnar á Íslandi.