157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:38]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Ég ætla bara rétt að koma upp af því að það er mikilvægt að hér komi fram að það er svolítið skrýtið, núna þegar maður er væntanlega í tíundu atkvæðagreiðslu um fjárlög, að þetta þurfi að vera árlegt efni. Það getur vel verið hér á höfuðborgarsvæðinu að fólki finnist þetta ekki skipta miklu máli, þingmönnum eða almenningi, en úti á landsbyggðunum er algjört grundvallarmál að þessi mál séu í lagi, gríðarlega mikilvægt. Ég ætla rétt að vona að að ári liðnu, í ellefta skiptið, þurfi ekki að taka atkvæðagreiðslu enn á ný um þetta. Það er satt að segja stórfurðulegt að við séum ár eftir ár að greiða atkvæði um þetta þegar ég held að flestir viti hvað þetta er stórt og mikið mál, sérstaklega á landsbyggðinni þar sem er oft allt annað aðgengi að sérfræðingum og þjónustu og annað. Það er stórfurðulegt að við séum að standa í þessu ár eftir ár. (Forseti hringir.) Auðvitað eigum við bara að tryggja að þessi mál rati í réttan farveg.