fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Hér leggur Miðflokkurinn til að útgjöld til borgarlínu verði stöðvuð. Nú er þetta eitthvað sem er hluti af samgöngusáttmálum sem hefur verið skoðað, samið um, samþykkt í öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og hér á þingi. Niðurskurður í þessum málaflokki myndi því hafa verulega neikvæð áhrif á samgöngur í Reykjavík norður þaðan sem ég kem og er tilefni til að fylgjast grannt með hvernig þingmenn Reykjavíkur greiða atkvæði í þessu máli og hvort frasinn „að menn sýni sitt rétta andlit“ eigi ekki við hér.