fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég kem hérna upp bara til að vekja athygli á því sem við höfum haft áhyggjur af í Framsókn, að þessi ríkisstjórn sé ekki alveg með augun á verðmætasköpun, á atvinnulífinu, á rannsóknum, á nýsköpun. Þessi liður er nánast blankó. Það er ekki verið að setja neitt í landbúnað. Ekki er verið að setja neitt í sjávarútveg, fiskeldi eða iðnað, og búið er að hafna öllum tillögum okkar um aukna fjármuni í markaðssetningu til neytenda, markaðssetningu í ferðaþjónustu og nýsköpun í landsbyggðunum. Hér sýnir ríkisstjórnin sinn vilja í verki. Það er voða lítið að gerast. Verðmætasköpunin verður til í atvinnulífinu. Þannig verða til peningar í ríkissjóði sem nýtast síðan til að standa undir velferð landsins.