157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:55]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um tillögu meiri hluta fjárlaganefndar um að veita 100 milljónir til viðbótar í flugþróunarsjóð. Þetta er rúmlega áratugs gamalt verkefni sem hefur skilað gífurlega miklum árangri. Við höfum séð það á Akureyri þar sem við erum komin með mjög reglulegt millilandaflug með easyJet. Þetta er allt fyrir tilstuðlan flugþróunarsjóðs og við eigum að halda áfram að efla þetta verkefni og vonandi fáum við að sjá sömu þróun eiga sér stað á Egilsstöðum. Ég greiði því mjög stoltur atkvæði með þessari tillögu meiri hluta fjárlaganefndar.