fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Það eru tvö mál sem standa okkur í Framsókn mjög nærri. Annað er orkuöryggi almennings og hitt er það að við séum að jafna kostnað, flutnings- og dreifikostnað, þannig að byggðir landsins standi jöfnum fæti. Hér er verið að taka ákveðið skref í þá átt. Við erum að sjá hækkun á jöfnunargjaldi sem hefur áhrif á þetta og það er jákvætt. Það er mikilvægt. Hins vegar er ljóst að samtímis þarf að skoða ákveðna jaðarnotendur sem geta t.d. verið garðyrkjubændur á þéttbýlisstöðum. Það þarf að passa upp á beingreiðslur til þeirra. Það þarf líka að horfa á að fjárfestingarstyrkir fylgi nýjum búnaði til að draga úr kostnaði fyrir slíka notendur. Við þurfum líka að horfa á lagahliðina þannig að gjaldskrár hækki ekki þó svo að jöfnunargjaldið breytist. Við í Framsókn beinum því til nefndarinnar að fjalla sérstaklega um þessa þætti (Forseti hringir.) því við viljum gjarnan að þetta mál fari í gegn og gagnist landsbyggðinni sérstaklega.