157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:00]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Um er að ræða 50 millj. kr. framlag til Neytendasamtakanna til að efla leiguvernd fyrir leigjendur og fjölga þar stöðugildum úr hálfu uppi í mögulega þrjú ásamt því að efla upplýsingar og kynningu. Þetta er mjög þarft mál og mjög brýnt mál. Það er talið að hér séu um 40.000 íbúðir á markaði og leigjendur ákveðið margfeldi af því og þjónusta við þennan hóp í algeru skötulíki miðað við stærð markaðarins. Ég fagna þessu og styð þetta heils hugar.