157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:02]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við verðum að forgangsraða í ríkisrekstrinum. Við erum að eyða um efni fram. Þeir sem borga þann reikning er unga fólkið í landinu og þess vegna eigum við að finna leiðir til þess að spara án þess að það hafi skaðleg áhrif. Þessi tillaga miðar að því. Við erum hér með góð markmið við landgræðslu og skógrækt. Við ætlum að halda áfram þar en það er skynsamlegt núna að spara þar eins og á ýmsum öðrum stöðum og því leggjum við þetta til og ef þingheimur samþykkir þessa tillögu þá munum við senda lægri reikning á unga fólkið í landinu.