157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:03]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Umhverfi skógræktar á Íslandi hefur stórkostlega breyst undanfarin ár og áratugi. Nú er komið fullt af einkaaðilum í skógrækt sem eru farnir að sinna öðrum einkaaðilum við að kolefnisjafna fyrirtæki o.s.frv. Í dag erum við skattgreiðendur að borga um 3.600 millj. kr. í Land og skóg og í ljósi breytts umhverfis skógræktar á Íslandi, hvað einkareksturinn er að koma miklu meira inn, er komið svigrúm til þess að skera niður í rekstri Lands og skógar um rúman milljarð.