157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Virðulegur forseti. Ég vil benda á að hér erum við að styðja allverulega við Bókasafnssjóð höfunda eftir að hafa verið skert gríðarlega um tugi prósenta síðustu ár. Hér erum við að bæta í með myndarlegu framlagi þannig að ég segi já með glöðu geði til að styðja við Bókasafnssjóð höfunda.