fjárlög 2026.
Frú forseti. Það er rétt að vekja athygli þingheims á því, út af umræðu hér um sóknaráætlanir og þau skref sem er verið að taka þar, að fara úr 120 milljónum núna í 400 millj. kr. og að færa þetta til landshlutasamtakanna, að hér kemur fram að Óðinn, hið ágæta félag sem rekur landhelgisgæsluskipið niðri á höfn, fær 13 milljónir. Mörgum öðrum svipuðum erindum er hafnað og þau sett inn í sóknaráætlun landshluta. Þarna er t.d. svona sérstakt dæmi um að það eru ekki allir að fá sömu meðferð hjá hv. meiri hluta fjárlaganefndar. Við getum tekið fjölda dæma sem mættu á svipuðum forsendum og Óðinn fá sitt. Þó að ég sé mjög hrifinn af Óðni og finnist eðlilegt að skipið fái sitt, þá er það tekið svolítið sér út fyrir miðað við fjölda annarra mála vítt og breitt um alla landsbyggðina.