157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur um að hér séum við að ganga til góðs, bæta hag Bókasafnssjóðs. Það hefðu verið vond skilaboð til rithöfunda þjóðarinnar, til íslenskunnar, til tungumálsins okkar, að skera þar niður við trog. Hér erum við að bæta í og það er vel.