fjárlög 2026.
Frú forseti. Íþróttir eru alveg gríðarlega mikilvægar þegar kemur að forvörnum barna og ungmenna og við erum hér að leggja til hækkun þegar kemur að ferðasjóðum, 200 milljónir, sem skiptir mjög miklu máli fyrir börn og ungmenni, sérstaklega á landsbyggðinni, að við séum að draga úr ferðakostnaði þeirra. Rétt rúmlega 80% af öllum leikjum og mótum eru haldin hér á stórhöfuðborgarsvæðinu þannig að fólk utan af landi og sérstaklega börn og ungmenni þurfa því oft að leggja land undir fót til að taka þátt í íþróttamótum og tómstundum sínum. Því teljum við að þetta sé eitt skref til þess að bæta stöðu barna og ungmenna sem stunda íþróttir og einmitt byggja undir forvarnir til lengri tíma sem er mjög mikilvægt.