fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að gera grein fyrir atkvæði mínu en ég er rauður í þessu máli þótt gott sé. Ég vek athygli þingheims á því að næsta atkvæðagreiðsla snýr einmitt að aukningu til ferðasjóðs ÍSÍ en það hefur því miður verið þannig að á síðustu árum hafa dregist saman framlög til sjóðsins. Á sama tíma og kostnaður við íþróttastarf hefur hækkað ár frá ári hefur ríkisstjórn Íslands dregið saman framlög til ferðasjóðs ÍSÍ. Þessi ríkisstjórn er að snúa þessu við með myndarlegri aukningu í sjóðinn. Sem dæmi var framlagið 2019 127 milljónir en árið 2023 var það 123 milljónir. Það er ágætt að hafa í huga að sótt var um 160 milljónir og ríkisstjórnin er með tillögu í næstu atkvæðagreiðslu um að hækka um 100 milljónir þannig að ferðasjóðurinn fari upp í 223 milljónir og tryggi þannig aðgengi ungs fólks alls staðar af landinu að þátttöku í íþróttastarfi. Það skiptir máli.