fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að lýsa yfir stuðningi við þessa tillögu og sé að við styðjum öll þessa tillögu og það er mjög jákvætt. Hér er annars vegar verið að fjalla um ferðasjóð ÍSÍ sem hefur verið ræddur hingað til, en það eru fleiri atriði undir. Undir þessum lið erum við að stíga fyrstu skrefin í að taka utan um unga fólkið okkar. Það er nú þegar búið að boða það að setja fyrstu ungmennastefnu Íslands og vinna og undirbúningur við hana eru hafin. Undir þessum lið er verið að efla ferðasjóð ÍSÍ, það er verið að auka til UMFÍ og það er verið að auka til Vatnaskógs. Það er verið að tvöfalda Æskulýðssjóð ríkisins sem er sérstakur verkefnasjóður þar sem ungt fólk alls staðar af landinu getur fengið styrk til að skipuleggja og framkvæma verkefni í eigin nærsamfélagi og til að byggja upp forvarnarstarf, tómstundastarf og menningarstarf á eigin forsendum úti um allt land. Því eru bara jákvæð og góð verkefni undir og þau eru meira að segja enn fleiri, líkt og Rafíþróttasambandið og fleiri. Þetta er afar jákvætt mál.