fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að það hefur verið ákveðin aukning í framlagi til íslenskunnar sem er meðal mikilvægustu innviða okkar. En betur má ef duga skal og við erum að leggja hérna til 200 millj. kr. til viðbótar þannig að þetta standi aðeins hærra því að við þurfum að bæta kennslugögn, við þurfum að styðja kennara, við þurfum að efla samtalsþjálfun og við þurfum líka að bæta þessa umgjörð. Það er ekki nóg að ráðstafa fjármagni, við þurfum líka að mæla hvernig gengur. Við þurfum mælitæki eins og TOEFL íslenskunnar, eitthvað sem segir okkur hvernig gengur. Þetta er stórt verkefni, 50.000 manns á örfáum árum. Ef við bregðumst ekki við og fjárfestum almennilega í einum af mikilvægustu innviðum okkar þjóðar, þá mun sundrung í samfélaginu aukast rétt eins og hún er þegar byrjuð að gera og við skulum ekki fara þangað. Fjárfestum þess í stað í þessum innviðum. Ég skora á þingheim að sameinast yfir þessari tillögu og greiða henni brautargengi.