157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:28]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Það má taka undir margar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir vegna innflytjendastefnu undangenginna ára. Tillagan hér kveður á um auknar 500 millj. kr. í þennan tiltekna málaflokk, 200 millj. kr. sem þarna eru nefndar fara í einhvers konar fjárfestingar. Mér skilst að hluti af þessu sé sú hugsun m.a. að skoða betri leiðir til að taka á móti erlendum börnum í skólakerfinu, hvernig sem það verður gert, hvort það væri að setja t.d. ekki börn, án þess að þau kunni orð í íslensku, beint inn í bekki og annað eins. Margt af þessu er hluti af stórri heildarmynd sem við verðum að skoða. Maður þekkir ekki nægilega hvernig hugsunin er hér né hefur maður tekið þátt í að móta þetta en markmiðin eru góð. En ég sit hjá að þessu sinni þótt það megi sannarlega taka undir göfug markmið.