157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:29]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Af orðum hv. þingmanns áðan, Höllu Hrundar Logadóttur, er mjög gott mál að efla íslenskuna. Hér er meiri hluti fjárlaganefndar að leggja mikla fjármuni í að efla kennslu í íslensku sem öðru máli, enda er það lykillinn að íslensku samfélagi að kunna íslensku. Við tökum þannig vel á móti fólki sem hingað kemur með því að kenna því íslensku. Ég fagna þessari tillögu og mun samþykkja hana með glöðu geði.