157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Frú forseti. Mig langaði bara að gera grein fyrir atkvæði mínu en ég segi að sjálfsögðu já við þessum lið og fagna því að verið sé að leggja fjármagn í að efla íslensku sem annað mál. Það hefur verið kallað lengi eftir því innan samfélagsins okkar að við tökum betur á móti fólki af erlendum uppruna, hvort sem það eru fullorðnir eða börn. Ég fagna þessu og ég vona að þið segið öll já við þessu líka.