fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Við erum hér að leggja til aukið fjármagn sem snýr að aðgengi að sérgreinalæknum, sérfræðiþjónustu á landsbyggðinni. Hér erum við sérstaklega að horfa á lækna sem geta tekið við þjónustu sem snýr að geðheilbrigði og ég óska eftir því að þingheimur hugsi þetta vel. Þetta er mikilvægt mál og þetta er mikilvægt mál fyrir landsbyggðina þar sem aðgengi að slíkri þjónustu er takmarkað. Það var rætt hér í samhengi við sóknargjöldin áðan. Við þurfum að gera betur og þetta er ein leið til þess.