157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:35]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um þrjár af þeim tillögum sem meiri hluti fjárlaganefndar hefur lagt fram í sínu nefndaráliti. Við erum m.a. að tala um 408 millj. kr. til Landspítala vegna nýs aðgerðaþjarka en á undanförnum árum hefur notkun þessara aðgerðaþjarka aukist verulega og er þetta virkilega þörf fjárfesting. Sömuleiðis erum við að tala um tækjakaup og búnað fyrir nýbyggingu Grensáss og að lokum erum við jafnframt undir þessum lið að leggja til tímabundið framlag til að halda áfram að þróa þjónustu fjarskiptalæknis en það er tillaga sem helst gagnast fólki úti á landi.