157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:37]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Frú forseti. Mig langaði bara að fagna því að áætlaður niðurskurður til starfsemi Ljóssins hefur verið dreginn til baka. Ég fagna því mjög. Ég hef persónulega haft not af þeirri þjónustu. Svo langar mig líka að óska öllum til hamingju sem hafa unnið að þessu, bæði í ráðuneytunum og fjármálaráðherra, fjármálaráðuneytinu og ekki síst fjárlaganefnd, fyrir allar hugmyndir. Mér finnst gríðarlega vandað til verka hér. Takk fyrir.