157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
fjárlög 2026.
1. mál
Frú forseti. Ég vil fagna sérstaklega þessu viðbótarframlagi til sérfræðiþjónustu utan sjúkrahúsa. Þar á meðal er Ljósið endurhæfingarstöð fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein og fleiri samtök eins og NLFÍ, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Alnæmissamtökin, Parkinsonsamtökin og Reykjalundur. Þessir fjármunir eru eyrnamerktir þessum aðilum og eiga að tryggja nægjanlegt rekstrarframlag á næsta ári. Ég segi já.