157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:41]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Já, ég er aðeins að eltast við þessa umræðu líka en kýs að tala um í raun tvo liði, annars vegar sjúkraflutningana sem eru nú hér aðeins síðar og síðan fjarlækningar sem ég hygg að sé nú þessi liður. Það er tilraunaverkefni sem hefur átt sér stað og gengur út á það að styðja við framlínuna úti í hinum dreifðu byggðum. Þetta er gríðarlega áhugavert og mikilvægt verkefni og með þessari fjárveitingu verður hægt að sinna þeirri þjónustu frá átta á morgnana til miðnættis hvern einasta dag ársins. Þetta er mjög mikilvægt. Eflingu sjúkraflutninganna læt ég fljóta með þótt það sé hugsanlega til atkvæðagreiðslu hér, en hún er líka til að styðja við fyrsta viðbragð um land allt.