fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég sé ástæðu til að leggja hér orð í belg vegna þessa liðar er varðar sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun. Til viðbótar við þá almennu aðhaldskröfu sem ríkisstjórnin leggur á þennan málaflokk, og birtist í fjárlögunum sjálfum, er hér verið að mæla fyrir enn frekari niðurskurði. Ég vek athygli á þessu enda um mjög viðkvæman málaflokk að ræða. Það vill nú þannig til að þjónustan er oft veitt í einhvers konar einkarekstri sem nýtur ekki mikillar hylli þessarar ríkisstjórnar. En það sem ég ætla að segja er hins vegar að málið er mjög brýnt. Nú eru 2.498 börn á biðlista hjá Geðheilsumiðstöð barna, 717 hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð og 4.865 sem bíða eftir því að njóta þjónustu talmeinafræðings.