fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég ætla að gera grein fyrir atkvæði mínu hér. Tæplega 5.000 börn bíða eftir því að komast að hjá talmeinafræðingi. Biðlistarnir eru víða. Ég hélt að þetta væri sameiginlegt verkefni okkar hér í þingsal, og við höfum talað um að það væri sameiginlegt verkefni okkar, að vinna á þessum biðlistum. Að horfa á tillögur um niðurskurð í þessum málaflokki í því ljósi — ég trúi því ekki að við ætlum að láta þetta gerast. Þetta eru ekki góð skilaboð til þeirra foreldra sem bíða úti í samfélaginu eftir því að börnin þeirra, þar sem biðlistinn er allt að 38 mánuðir, komist að hjá talmeinafræðingi. Við erum að fara að skera þennan málaflokk niður en það er verið að auka útgjöld um 143 milljarða. Þetta er óskiljanlegt, virðulegur forseti, og ég trúi ekki að við séum að fara að gera þetta. Ég verð á rauðu hér.