157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:47]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Bráðaþjónusta utan spítala, eða sjúkraflutningar eins og það heitir í þessum lið, er gríðarlega mikilvægt verkefni. Alþingi samþykkti þverpólitískt þingsályktunartillögu þar sem lagt var til að þessi málaflokkur fengi séreiningu innan stjórnsýslu heilbrigðisráðuneytisins, svo að hann væri ekki á flakki úti um allt kerfið, að það yrði settur fókus á þetta. Hér hefur líka verið þverpólitísk samstaða um að koma á sérstakri sjúkraþyrlu sem myndi þá eiga heima undir þessu setri og með þeim fjarlækningum og lækni á vakt sem var verið að tala um áðan. Ég verð á grænu í þessum lið en vonast til þess að sjá hann stækka og þróast og að heilbrigðisráðuneytið fylgi þeim ályktunum sem Alþingi hefur samþykkt.