157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:48]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem hér til að gera grein fyrir atkvæði mínu varðandi þennan lið. Ég tel það afar jákvætt mál að við séum að efla sjúkraflutninga, það skiptir máli. En ég vil þó nýta ferðina þar sem einhver misskilningur virðist hafa verið í þeim málaflokkum sem hafa verið hér til umræðu. Hér voru haldnar innblásnar ræður um biðlista talmeinafræðinga vegna niðurskurðar í stjórnsýslu heilbrigðisráðuneytisins. Það er mikilvægt að gera greinarmun á heitum yfirflokka og þeirra lína sem um er fjallað. Hér voru því í raun haldnar ræður þar sem gagnrýnd var hagræðingarkrafa á ráðuneyti málaflokksins undir því yfirskyni að verið væri að skerða þjónustu. Ég held að við ættum öll að taka höndum saman að ráðast í tiltekt í ríkisrekstri og draga saman þar sem hægt er að draga saman en að sjálfsögðu beinist það ekki að þjónustu við börn.