157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:52]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að sjá að í meðförum fjárlaganefndar og í meðförum annarra nefnda og þingsins hafi verið gerð breyting á fyrri áætlunum og rúmum milljarði hafi verið bætt í endurhæfingarþjónustu. 700 milljónum u.þ.b. er ætlað til endurhæfingarverkefna eða stofnana eins og Ljóssins og fleiri slíkra samtaka. Okkur og marga hér í þjóðfélaginu rak í rogastans þegar fjárlögin voru fyrst kynnt þegar yfir 200 millj. kr. í rauninni vantaði inn til Ljóssins sem setti þeirra starfsemi í algjört uppnám, vantaði frá fyrra ári því að þá hafði það einmitt gerst að fjárlaganefnd veitti þann styrk til þess að starfsemin gæti staðið undir sér. Svo eru 340 millj. kr. til meðferðarstofnana sem eru gríðarlega mikilvægar, sjálfstætt reknar og þjóna gríðarlega mikilvægum (Forseti hringir.) verkefnum í samfélaginu. Þetta er því hið besta mál og ég vil bara þakka þeim sem hafa barist fyrir því að þetta yrði leiðrétt því þessi óvissa sem hefur ríkt undanfarna mánuði hjá þessum stofnunum (Forseti hringir.) sem reiða sig á þessi framlög hefur verið mjög lýjandi og þetta er fagnaðarefni og því styð ég þetta.

(Forseti (BHar): Forseti biður hv. þingmenn um að halda sig innan tímamarka. Enn eru allmargir þingmenn sem ætla að gera grein fyrir atkvæði sínu.)