157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:54]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég fagna því að fá að greiða atkvæði með þessum lið fjárlaganna. Það hefur verið þannig í gegnum tíðina að það hefur gjarnan verið skert framlag sem fer í mikilvægt meðferðarstarf, ekki síst hjá þeim sem fíknisjúkir eru. Þessi ríkisstjórn er að snúa af þeirri braut, tryggði það m.a. að það voru engin úrræði lokuð í sumar eins og hafði verið að gerast áður og svo er verið að tryggja það að starfsemin geti verið með eðlilegum óskertum hætti til aðeins lengri tíma. Til viðbótar við þetta er auðvitað verið að huga að því að ná ákveðinni heildaryfirsýn yfir allan málaflokkinn, bæta alla umgjörð þar og mögulega gera það að verkum að það sé auðveldara að stýra fólki í rétt úrræði en öll eru þau svo sannarlega mikilvæg. Ég tek undir að það er mikið fagnaðarefni að Ljósið og aðrar stofnanir eða önnur félagasamtök fái líka tækifæri til að dafna og blómstra. Það er alveg ótrúlega mikilvægt starf undir alls staðar í þessum lið.