157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:55]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég er á grænu hér. Ég held að það hafi sýnt sig að sterk andstaða stjórnarandstöðunnar í ræðustól, sem og víðar, og sterk viðbrögð úr samfélaginu, m.a. með fyrirhuguðum niðurskurði á framlögum til Ljóssins um 200 milljónir, séu að skila sér núna og ég segi bara: Batnandi fólki er best að lifa. Það er ánægjulegt að sjá að það eigi að halda áfram að styrkja með sama hætti þessa mikilvægu pósta, stofnanir og samtök eins og Ljósið. Ég treysti því að þær 200 milljónir sem átti að skera af Ljósinu skili sér aftur.