157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:56]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Frú forseti. Ég ætlaði að koma aftur á réttum tíma [Hlátur í þingsal.] og ítreka það sem ég sagði hérna áðan; hugheilar þakkir fyrir þessa merkilegu, flóknu og ítarlegu vinnu sem á sér óneitanlega stað við svona verkefni. Ég þekki það af eigin raun. Það gladdi mig alveg sérstaklega að sjá þessa leiðréttingu til Ljóssins. Ljósið, eins og við mörg þekkjum, er orðið hluti af endurhæfingu eftir krabbamein, bæði fyrir sjúklinga og aðstandendur. Og svo tek ég undir það sem hv. þm. Jens Garðar Helgason sagði áðan: Batnandi fólki er best að lifa. Nú hringi ég í Jens. [Hlátrasköll í þingsal.]