157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:59]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég er ánægður með að heyra þá samstöðu sem er um að setja aukið fé til endurhæfingar. Þetta er vaxandi viðfangsefni, verkefni, en maður getur ekki varist þeirri hugsun, eftir að hafa fengið aðeins yfirsýn, að þetta hafi þróast á svolítið brotakenndan hátt, sprottið úr grasrótinni, ef svo má segja. Ég held að þetta sé eitt af mikilvægu verkefnum núna til framtíðar; að móta heildstæða sýn á það hvernig staðið er að endurhæfingu og hvernig fjármunum er best varið og að gerðir verði samningar á grunni slíkrar stefnu. Það er mjög margt frábærlega gert og dæmið um Ljósið sem hér hefur verið nefnt er eitt af því en auðvitað eru margar rótgrónar stofnanir líka sem hafa mismunandi fjárhagslegan grundvöll og minni félagasamtök sem hafa verið að byggja upp minni einingar. Ég held að það þurfi að ná yfir þetta á heildstæðan hátt því að það eina sem við vitum nánast í þessum heimi er að þörf fyrir endurhæfingu mun bara aukast í framtíðinni.