fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég segi að sjálfsögðu já við þessari tillögu sem fram kemur í áliti meiri hluta fjárlaganefndar og það er mjög ánægjulegt að sjá hve nánast algræn taflan er. Hér erum við annars vegar að veita 700 millj. kr. tímabundið framlag til endurhæfingarstofnana en jafnframt erum við með 344 millj. kr. tímabundið framlag til að efla meðferðarúrræði. Auðvitað fagna ég þeirri tillögu og því að hún sé hér samþykkt. Ég vil þó sérstaklega fagna þeirri áherslu sem fram kemur í áliti meiri hluta á að efla úrræði við spilafíkn. Spilafíkn er virkilega alvarlegur sjúkdómur sem því miður hefur stundum gleymst þegar við erum að ræða um meðferðarúrræði og ég vil sérstaklega þakka hæstv. heilbrigðisráðherra Ölmu Möller fyrir að leggja áherslu á það núna þegar lagt verður af stað í að gera samninga á ný við SÁÁ.