fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Fyrst vil ég segja varðandi endurhæfingarstofnanirnar hérna áðan að 700 milljónir duga auðvitað engan veginn fyrir þeirri starfsemi sem var beðið um. Það verða ekki margir mánuðir þangað til það verður kallað eftir því að fá aukið fé. Það er önnur saga. Hér er tillaga okkar í Framsókn: Að bæta við 500 milljónum í lyfjakaup. Hv. þingmaður okkar í velferðarnefnd, Ingibjörg Isaksen, hefur óskað ítrekað í velferðarnefnd eftir upplýsingum um stöðu lyfjamála, vor og haust, og hefur ekki fengið neinar. Meiri hlutinn er að leggja hér til 700 milljónir, sem er vel, en skilur samt eftir þann hóp sem er í hvað alvarlegustu og mikilvægustu stöðunni, þá sem þurfa ný krabbameinslyf. Það segir meiri hlutinn að þurfi að taka til skoðunar. Við lítum því svo á að hér séum við að leggja til að fólk sem þarf þau lyf sem eru aðgengileg fólki á Norðurlöndum til að berjast við þann vágest sem krabbameinið er geti fengið stuðning, með því að samþykkja þessa tillögu. Þess vegna segjum við já við þessari tillögu.