157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:07]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Ég ætla að vona að ég sé ekki að lenda í því sama og margir hér hafa lent í, að það sé verið að greina í sundur. Mig langaði þó til að vekja athygli á lið nr. 78 og fagna honum, undir jöfnun örorkubyrði almennra lífeyrissjóða. Þetta er mál sem fór í gegnum kjarasamninga fyrir 20 árum síðan og hefur verið bætt af ríkinu allan þann tíma vegna ólíkrar stöðu lífeyrissjóðanna hvað varðar örorkubyrði. Sumir lífeyrissjóðir eru að greiða allt að 25% af sinni innkomu til örorku en í þessum kjarasamningum var lögð áhersla á að ná þessu framlagi í gegn. Það er búin að vera togstreita nokkur undanfarin ár um hvort þetta ætti að halda áfram. Það hefur tekist að halda þessu inni og það er alla vega verið að tryggja það hér, a.m.k. næsta ár. Ef það á að taka þetta út þarf að finna einhverja aðra leið því að við getum ekki látið suma lífeyrissjóði sem eru með slitið fólk, sem hefur verið að greiða í þá sjóði, bera svona háa örorkubyrði.